Eldað undir bláhimni sigraði í flokknum ,,Best Local Cuisine Book" á Íslandi

Skagfirska bókin „Eldað undir bláhimni“ sem tileinkuð er skagfirskri matarmenningu og gefin var út af Nýprenti fyrir síðustu jól hefur vakið mikla athygli bæði innanlands og utan en hún inniheldur rúmlega fjörutíu uppskriftir og fjölda stórglæsilegra ljósmynda af skagfirskri matargerð, náttúrufegurð og mannlífi. Útgefandi bókarinnar tók þátt í alþjóðlegri keppni matreiðslu- og vínbóka, Gourmand World Cookbook Awards.

Á hverju ári veitir Gourmand, þeim bókum sem þykja skara fram úr í heimi matreiðslunnar verðlaun, en alls eru 200 matreiðslubækur og 50 vínbækur sem hafið hafa keppni nú. Veitt eru verðlaun í mismunandi flokkum þar sem tekið er tillit til innihalds, prentunar, hönnunar o.fl. Í lokin fer ein bók úr hverjum flokki frá hverju landi í úrslit og að lokum er blásið til mikillar bókamessu Paris Cookbook Fair. Á bókamessunni fá útgefendur tækifæri til að hitta áhrifafólk í matreiðsluheiminum, útgefendur, höfunda, matreiðslumenn og blaðamenn og koma sinni afurð á framfæri.

Um tuttugu og sex þúsund matreiðslubækur eru gefnar út árlega í heiminum og er markmið keppninnar m.a. að hjálpa lesendum og ekki síður bóksölum að finna bestu bækurnar úr öllum þeim fjölda.

Eldað undir bláhimni sigraði í flokknum Best Local Cuisine Book á Íslandi og mun í framhaldinu taka þátt í aðalkeppninni um bestu matreiðslu- og vínbækur í heimi. Niðurstöðurnar úr þeirri keppni verða tilkynntar þann 20. – 21. maí nk. í Beijing.

Heiðdís Lilja Magnúsdóttir ritstjóri bókarinnar Eldað undir bláhimni, Óli Arnar Brynjarsson hönnuður bókarinnar og myndasmiður og Pétur Ingi Björnsson ljósmyndari.

Fleiri fréttir