Eldhúsið heima ekki lengur eitrað, segir Ásmundur Einar
Þingmenn Framsóknarflokksins hafa lagt fram frumvarp til breytingar á lögum þeim er hindra það að kvenfélög, skátar, íþróttafélög og aðrir geti haldið kökubasara til fjáröflunar fyrir sín félög eða góðgerðamála sem þau styðja.
Í frumvarpinu er lagt til að veitt verði heimild til leyfisveitinga til sölu matvæla sem ekki eru bökuð í sérstökum eftirlitsskyldum eldhúsum en til að unnt sé að veita undanþáguna verður skilyrt að framleiðslan sé vegna góðgerðastarfsemi, til að styrkja félagastarf eða í öðrum sambærilegum tilgangi.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Ásmundar Einars Daðasonar hér á Feyki.