Eldur í bíl á Blönduósi

Slökkviliðið á Blönduósi var kallað út rétt fyrir klukkan fjögur í gær vega elds sem hafði kviknað í bíl er staðsettur var í bragga við gömlu mjólkurstöðina á Blönduósi. Þegar slökkviliðið bar að hafði eldur einnig læst sig í útveggi braggans.
Bragginn sem um ræðið er við gömlu mjólkurstöðina á Blönduósi. Greint er frá þessu á vefnum huni.is og þar kemur fram að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn en slökkvistarfi lauk á um tveimur tímum. Þrír aðrir bílar voru í bragganum og eru þeir taldir ónýtir.