Eldur kveiktur í ruslagámi við Blönduskóla

Kveikt var í ruslagámi við Blönduskóla á Blönduósi á laugardag. Betur fór en á horfðist en slökkviliðið var kallað út og náði að slökkva í gámnum áður en eldurinn náði að breiðast út.

Gámurinn var staðsettur við kjallaradyr nýja skólans en málning á vegg skemmdist nokkuð. Það er Húni.is sem greinir frá þessu og áréttar að aldrei sé of oft áréttað fyrir börnum að vera ekki að fikta með eld.

Fleiri fréttir