Elísabet veltir upp úrvali íþróttagreina fyrir börn á Blönduósi

 

Elísabet Kristín Kristmundsdóttir nemandi í Fjölmiðlavali Grunnskólans á Blönduósi skrifar skemmtilegan pistin inn á heimasíðu krakkanna, óvitann, þar sem hún veltir upp hvaða úrval sé fyrir krakka á Blönduósi sem vilja stunda íþróttir.

Hér er pistill Elísabetar.

Íþróttir eru margar greinar sem krefjast hreyfingar og rökhugsunar, t.d. fótbolti, blak, sund, hestaíþróttir, skák og fleira.

Íþróttastarf á Blönduósi er ekki fjölbreytt, ef þú ert í 1. -4. bekk er bara íþróttaskóli í boði og ef þú ert í 5. -10. bekk er það bara fótbolti eða ekki neitt.

Flestir krakkanna hér á svæðinu æfa eða hafa prufað að æfa fótbolta en alls ekki öllum hefur líkað það og það þarf virkilega að vera eitthvað annað fyrir þá.

Íþróttir eru hollar og gott er fyrir alla, gamla sem unga, að stunda einhverja íþrótt hvort sem hún felur í sér mikla hreyfingu eða ekki .

Elísabet Kristín Kristmundsdóttir

Fleiri fréttir