Ellefu íslendingar rita Dominique Strauss og José Manuel Borroso bréf

Sigurjón Þórðarson sveitastjórnarfulltrúi í Skagafirði er einn ellefu einstaklinga sem ritað hafa Dominique Strauss Kahn framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og José Manuel Barroso forseta framkvæmdastjórar Evrópusambandsins bréf.

Í bréfinu lýsa bréfritarar þungum áhyggjum af því að núverandi frumvarp um Icesave-samninginn, sem verður lagt fyrir í þjóðaratkvæðagreiðslunni 9. apríl n.k., endurspegli ekki þessa neikvæða samfélagslega þróun.

Fara bréfritarar þess á leit við AGS og ESB að þessar stofnanir „geri ítarlegt og sjálfstætt endurmat á skuldaþoli Íslands annars mun vanhugsuð úrlausn Icesave-málsins þröngva Íslandi í ósjálfbæra erlenda skuldagildru.“

Bréfið í heild sinni má lesa hér fyrir neðan.

Reykjavík 28. mars 2011

Hr. Dominique Strauss-Kahn

framkvæmdarstjóri

Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Washington, DC 20431

USA

/

Hr. José Manuel Barroso

forseti Framkvæmdarstjórnar Evrópusambansins

1049 Brussels, Belgium

Kæri, hr. Strauss-Kahn. / Kæri, hr. Barroso.

Eftir hrun íslenska bankakerfisins í október 2008 féll verg landsframleiðsla (VLF) um 25% á næstu tveimur árum eða úr 17 milljörðum bandaríkjadala niður í 12‚8 milljarða bandaríkjadala (USD). Ef spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um 14,8% vöxt vergrar landsframleiðslu næstu þrjú árin gengur eftir mun hún nema 14,7 milljörðum bandaríkjadala árið 2013 og vera 13% lægri en árið 2008.

Horfurnar eru aðeins skárri ef mið er tekið af vergri landsframleiðslu á stöðugu verðlagi í íslenskum krónum . AGS spáir að árið 2013 verði verg landsframleiðsla um 2-3% lakari en árið 2008 sem þýðir að hún verður 4-6% lægri en AGS spáði í nóvember 2008.

Með öðrum orðum þá eru efnahagshorfur Íslands umtalsvert lakari en gengið var út frá við gerð svokölluðu Brussels viðmiða fyrir ICESAVE samninga sem aðilar málsins samþykktu undir handleiðslu viðkomandi stofnunar Evrópusambandsins (ECOFIN) í nóvember 2008.

Jafnframt telur AGS að vergar erlendar skuldir Íslands í lok ársins 2009 hafi verið um 308% af vergri landsframleiðslu. Það þýðir nærri tvöfalt það 160% hlutfall sem sjóðurinn spáði í nóvember 2008. Í skýrslu AGS um Ísland, dagsettri 22. desember 2010, er því spáð að vergar erlendar skuldir Íslands muni nema 215% af vergri landsframleiðslu í árslok 2013 (sjá töflu 3, bls. 32 í umræddri skýrslu) eða liðlega tvöfalt það 101% hlutfall sem spáð var í nóvember 2008 (sjá töflu 2, bls. 27 í sama riti).

Vergar erlendar skuldir Íslands í lok 2009 voru langt umfram það 240% hlutfall af vergri landsframleiðslu sem starfsmenn AGS mátu sem „augljóslega ósjálfbært” í skýrslu þeirra sem er dagsett 25. nóvember 2008 (sjá bls. 55 í þessari skýrslu).

Meginmarkmið þess samningaferils um ICESAVE sem hleypt var af stokkunum í nóvember 2008 var að tryggja uppgjör á flóknum málum sem viðkomandi aðilar, að meðtöldum ESB og AGS, voru einhuga um að leiða til farsællar lausnar samhliða endurreisn íslenska hagkerfisins.

Við undirritaðir Íslendingar höfum verulegar áhyggjur af því að fyrirliggjandi drög að samkomulagi um ICESAVE samrýmist ekki þessu meginmarkmiði, og vísum í því sambandi til umsagna AGS um þróun og horfur varðandi innlendar hagstærðir og erlenda skuldastöðu Íslands hér að ofan.

Því förum við þess virðingarfyllst á leit við ESB og AGS að þessar stofnanir takist á hendur ítarlegt og sjálfstætt endurmat á skuldaþoli Íslands svo að vanhugsuð úrlausn ICESAVE-málsins þröngvi ekki Íslandi í ósjálfbæra erlenda skuldagildru.

Virðingarfyllst,

Gunnar Tómasson, hagfræðingur

Ásta Hafberg, háskólanemandi

Gunnar Skúli Ármannsson, læknir

Helga Þórðardóttir, kennari

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, stjórnsýslufræðingur

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna

Rakel Sigurgeirsdóttir, framhaldsskólakennari

Sigurjón Þórðarson, formaður Frjálslynda flokksins

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar

Þórður Björn Sigurðsson, starfsmaður Hreyfingarinnar

Fleiri fréttir