Elsa Lára Arnardóttir býður sig fram í 3. sæti á lista Framsóknarflokkinn í NV
Elsa Lára er fædd árið 1975 og uppalin í Lambhaga í Hvalfjarðarsveit og einnig á Hornafirði, en býr nú á Akranesi. Hún er með próf í grunnskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands og kennir við Brekkubæjarskóla á Akranesi. Hún er gift Rúnari Geir Þorsteinssyni rafiðnfræðingi og saman eiga þau tvö börn, Þorstein Atla 13 ára og Þórdísi Evu 9 ára.
Yfirlýsing frá Elsu Láru:
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningar næsta vor. Ég hef verið varabæjarfulltrúi fyrir Framsóknarflokkinn á Akranesi frá 2010 og m.a. setið í stjórn Akranesstofu, afmælisnefnd Akraneskaupsstaðar og verið varamaður í Fjölskylduráði. Einnig sat ég um nokkurt skeið í foreldrafélagi grunnskólanna og hélt utan um foreldrahóp einhverfra barna á Akranesi og nágrenni.
Ég hef ákveðið að bjóða mig fram því ég tel mig góðan málsvara hins venjulega Íslendings. Ég vil leggja mitt af mörkum við að finna lausnir á skuldavanda heimilanna, efla atvinnuuppbyggingu og gera Ísland að betri stað til að búa á.
Ég býð mig fram fyrir Framsóknarflokkinn því stefna hans byggist á samvinnu fjöldans og falla markmið mín vel að stefnu flokksins.