EM stofur á ýmsum stöðum

Hressir Íslendingar á EM í Frakklandi. Lengst til vinstri er Ingileif Oddsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, en rætt var við hana og fleiri Norðvestlendinga sem farið hafa á EM í síðasta tölublaði Feykis.
Hressir Íslendingar á EM í Frakklandi. Lengst til vinstri er Ingileif Oddsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, en rætt var við hana og fleiri Norðvestlendinga sem farið hafa á EM í síðasta tölublaði Feykis.

Skagfirðingar og Húnvetningar verða með sínar eigin EM stofur á ýmsum stöðum á svæðinu í kvöld þegar leikur Íslands og Englands í 16 liða úrslitum á EM verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

Feykir hefur spurnir af því að leikurinn verði m.a. sýndur á Kaffi Krók á Sauðárkróki, í Félagsheimilinu Ketilási í Fljótum, Borginni á Skagaströnd, Félagsheimilinu á Blönduósi, Sjávarborg á Hvammstanga og í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Þá verða einhverjir af ofantöldum stöðum með veitingatilboð af þessu tilefni. Á Sjávarborg verður til að mynda „Take away“ tilboð á ostborgara með frönskum og gosi.

Á vef rúv.is er vakin athygli á því að hjartaáföllum fjölgi í kringum atburði þar sem mikil geðshræring grípur um sig eins, til að mynda fótboltaleiki. Haft er eftir Davíð O. Arnar, yfirlækni hjartalækninga á Landspítala að komi til vítaspyrnukeppni gæti hún reynt mikið á taugarnar og aukið líkur á hjartatilfellum.

Ráðleggur hann fólki m.a. að forðast þunga máltíð rétt fyrir eða samhliða leiknum, ekki síst fituríkan skyndimat, vera ekki illa sofinn, forðast mikla áfengisneyslu og reykingar. Einnig að muna sérstaklega vel eftir hjartalyfjum og drekka vatn ef heitt er í veðri og horft á leikinn úti. „Ef spennustigið hjá einstaklingum verður of hátt, þá er gott að draga andann djúpt nokkrum sinnum og jafnvel taka sér stutt hlé frá leiknum,“ segir í ráðleggingum á vef rúv.is og að lokum er minnt á 112, ef einkenni frá hjarta gera vart við sig.

 

Fleiri fréttir