Emma og Þorgrímur gefa rafbækur
Í október fengu grunnskólanemar að gjöf átta bækur á rafbókaformi eftir Þorgrím Þráinsson sem þeim er frjálst að sækja á rafbókaveitunni Emma.is og lesa eins og þá listir. Bækurnar átta höfða til breiðs hóps lesenda allt frá 1. til 10. bekkjar.
Á bak við bókagjöfina standa Þorgrímur Þráinsson og aðstandendur rafbókaveitunnar emma.is sem vilja með þessu hvetja krakka og unglinga til aukins yndislesturs. Nýlegar kannanir sýna að krakkar og ungt fólk lesa sjaldnar en áður. Margt annað er meira freistandi en að taka sér bók í hönd og sú staðreynd var upphaf þessa samstarfs; Þorgríms og Emmu. Lestur á rafrænu formi er góður og gildur og opnar jafnmargar dyr og lestur hefðbundinnar bókar.
Starfmenn Emmu hafa unnið að því í sumar að færa eldri bækur Þorgríms Þráinssonar á stafrænt form og gera úr þeim rafbækur sem hægt er að lesa á öllum lestækjum og tölvum svo sem iPad, iPod touch, Kindle, snjallsímum með Android eða Windows, PC tölvum eða Mac.
Bækurnar sem Emma og Þorgrímur gefa eru:
- - Með fiðring í tánum (frá 1998)
- - Bak við bláu augun (1992)
- - Lalli ljósastaur (1992)
- - Spor í myrkri (1993)
- - Sex augnablik (1995)
- - Svalasta 7an (2003)
- - Undir 4 augu (2004)
- - Litla rauða músin (2008)
Það er von Þorgríms og aðstandenda Emmu að þessi veglega bókagjöf hvetji grunnskólanemendur til þess að lesa meira og nýta sér nýja tækni til lestrarins. Bækurnar er hægt að sækja á emma.is frítt skólaárið 2012-2013. Þar er einnig að finna leiðbeiningar um hvernig hægt er að lesa rafbækur í ýmsum tækjum.