„En amma hafði á öldinni gát og aflann úr fjörunni dró”
Eins og venja hefur verið undanfarin ár býður Heimilisiðnaðarsafnið upp á sérstaka dagskrá á síðasta degi Húnavöku, þ.e. sunnudaginn 19. júlí. Í ár mun Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur flytja Ömmufyrirlestur og hefst fyrirlesturinn kl. 14:00. Kristín nefnir fyrirlestur sinn „En amma hafði á öldinni gát og aflann úr fjörunni dró.“
Kristín dregur upp mynd af ömmu og langömmu sinni, en það má segja að mikil samsvörun hafi verið á lífi alþýðukvenna á öldinni sem leið burtséð frá því hvar á landinu þær höfðu búsetu.Eftir fyrirlesturinn mun Kristín bjóða upp á spjall við gesti - rifja upp minningarbrot frá lífi formæðra okkar. Þá mun einnig verða kaffi á könnunni.
Bæði fyrirlesturinn og Sumarsýning safnsins „Fínerí úr fórum formæðra“ eru tileinkuð því að 100 ár eru frá því íslenskar konur fengu kosningarrétt. Í tilefni dagsins eru konur hvattar til að taka fram þjóðbúninginn sinn og klæða sig uppá.