Endurauglýsa þarf deiliskipulag fyrir Stekkjarvík
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir því við Blönduósbæ að deiliskipulag fyrir urðunar- og efnistökusvæðið í Stekkjarvík verði endurauglýst samkvæmt nýjum skipulagslögum. Þar sem ekki hafi verið óskað eftir undanþágu um auglýsingu deiliskipulags á grundvelli svæðisskipulags á sínum tíma telur stofnunin að um formgalla sé að ræða og því þurfi að endurauglýsa.
Málið var til umfjöllunar á fundi skipulags-, byggingar- og veitunefnd Blönduósbæjar síðastliðinn mánudag. Þar kom fram að ekki sé þörf á að kynna lýsingu né halda kynningarfund um málið þar sem um endurauglýsingu er að ræða og ekki hafi verið gerðar athugasemdir við fyrri auglýsingu.
Einnig kom fram að deiliskipulagið vegna fyrri auglýsingar hafi verið sent lögformlegum aðilum til umsagnar. Umsögn hafi komið frá Fornleifavernd ríkisins þar sem ekki var gerð athugasemd við deiliskipulagið. Ekki hafi borist umsögn frá Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra og Umhverfisstofnun en þær stofnanir höfðu gefið umsögn á fyrri skipulagsstigum.
Þá kom fram á fundinum að deiliskipulagsgögn hafi verið lagfærð m.t.t. umsagna Skipulagsstofnunar frá 14. maí 2010 og 29. september 2010.
Skipulags- og byggingarfulltrúa var falið að ganga frá gögnum og endurauglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir urðunar- og efnistökusvæði í Stekkjarvík.
/Húni.is