Endurbætur á íþróttavelli fyrir Landsmót UMFÍ 50+
Á vefnum huni.is er sagt frá því að undirbúningur sé hafinn fyrir Landsmót UMFÍ 50+ sem haldið verður á Blönduósi í sumar. Í síðustu viku hófst Blönduósbær handa við að lagfæra langstökksbrautina á íþróttavellinum.
Verður langstökksbrautin endurnýjuð og gryfjur settar í bæði norður- og suðurenda hennar. Þá verður hlaupabrautin löguð og fleiri endurbætur gerðar á vellinum. Landsmótið verður haldið helgina 26. – 28. júní.