Endurbætur á Kjalvegi verða að komast á dagskrá hjá hinu opinbera fjárveitingavaldi

Þrjú sveitarfélög og sjö ferðaþjónustufyrirtækja sem hagsmuna eiga að gæta vegna Kjalvegar hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem bent er á mikilvægi þess að gera Kjalveg að góðum akvegi. Þar segir að algjörlega óviðunandi sé að í stefnumarkandi samgönguáætlun til tólf ára og verkefnaáætlun til fjögurra ára sem Alþingi hefur samþykkt sé ekki að finna neitt um endurbætur eða uppbyggingu á Kjalvegi.

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

„Akstursleiðin um Kjöl er í orði kveðnu „vegur í grunnneti“ og „stofnvegur um hálendi“ en er í raun óboðlegur vegslóði að stórum hluta. Eigi ökuleiðin að standa undir nafni sem vegur í hinni opinberri samgönguáætlun verða nauðsynlegar endurbætur að komast strax á blað og til framkvæmda hjá fjárveitingavaldinu, Alþingi.

Ferðaþjónustan dregur vagn samfélagsins eftir hrun ásamt öðrum gjaldeyrisskapandi atvinnugreinum. Hún skilaði 238 milljörðum króna í gjaldeyristekjur á árinu 2012 og skilar enn meiru 2013.

Stjórnvöld vilja fleiri erlenda ferðamenn og enn meiri gjaldeyristekjur af þeim en það kostar oft fjármuni að afla tekna! Endurbætur á Kjalvegi munu kosta brot af því sem þær skila ríkissjóði og ferðaþjónustunni.

Við gefum okkur að margir kysu helst veg með bundnu slitlagi um Kjöl en ef ekki fást fjármunir til slíkra framkvæmda er lágmarkið að í stað niðurgrafins vegslóða komi greiðfær „ferðamannavegur“ sem stendur upp úr umhverfi sínu.

Óboðlegur Kjalvegur skemmir bíla og skaðar ímynd landsins og ferðaþjónustunnar.

Endurbættur Kjalvegur eflir ferðaþjónustuna, styrkir samgöngur milli Norðurlands og Suðurlands og eykur öryggi landsmanna í samgöngukerfinu. Það er ekki eftir neinu að bíða.“

Undir þetta skrifa Þóra Sverrisdóttir oddviti Húnavatnshrepps, Drífa Kristjánsdóttir oddviti Bláskógarbyggðar og Ragnar Magnússon oddviti Hrunamannahrepps.

Að yfirlýsingunni standa líka eftirtalin ferðaþjónustufyrirtæki: Allrahanda ehf., Fannborg ehf., Fjallamenn ehf., Gljásteinn ehf., Hveravallafélagið ehf., SBA ehf., og Sterna ehf.

Fleiri fréttir