Endurnýjun hitaveitulagna á Hvammstanga

Frá Hvammstanga. MYND: HUNATHING.IS
Frá Hvammstanga. MYND: HUNATHING.IS

Næstu daga munu framkvæmdir hefjast við endurnýjun hitaveitulagna við Veigarstíg, norður Höfðabraut og upp Lækjagötu að Hvammstangabraut. Fram kemur á heimasíðu Húnaþings vestra að verktími sé áætlaður frá 22. maí til 30. ágúst en kappkostað verður að ljúka verkinu á sem skemmstum tíma.

„Til að byrja með verður lokað fyrir bílaumferð í nokkra daga á Veigarstíg. Á meðan á framkvæmdum stendur verður reynt að hafa að lágmarki annan helming Höfðabrautar opinn fyrir umferð til suðurs. Ekki verður hægt að hafa gangstéttar opnar fyrir gangandi/hjólandi umferð,“ segir í tilkynningunni.

Það er Gunnlaugur Agnar Sigurðsson sem er verktaki jarðvinnu en lagnavinna er í höndum starfsmanna þjónustumiðstöðvar Húnaþings vestra.

„Ekki á að koma til truflana á afhendingu á heitu vatni nema þegar nýjar heimtaugar eru tengdar í hús. Íbúar og vegfarendur eru beðnir um að sýna framkvæmdinni og því raski sem hún kann að valda, þolinmæði. Verkið er mjög brýnt til að tryggja afhendingaröryggi á staðnum,“ segir að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir