Endurvinnslutunnur og umferðamál meginumræðuefni á íbúafundi

Ánægja var með íbúafundinn á Blönduósi. Mynd/Fb-síða Blönduósbæjar.
Ánægja var með íbúafundinn á Blönduósi. Mynd/Fb-síða Blönduósbæjar.

Fjölmennur íbúafundur var haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi síðastliðinn mánudag en þar voru tvö megin mál til umræðu. Annars vegar endurvinnslutunnur á hvert heimili og hins vegar umferðarhraði í íbúðagötum. 

Á húna.is segir að á fundinn hefði mætt Gunnar Bragason, framkvæmdastjóri Gámaþjónustunnar. Hann fór yfir ýmis mál varðandi endurvinnslu og sagði m.a. frá því að í maí eða júní nk. yrði endurvinnslutunna í boði fyrir öll heimili á Blönduósi en þar er um það bil 300 tunnur. Í þessar tunnur má einungis setja pappír, drykkjarfernur og bylgjupappír. Öðru eins og t.d. plastílát, plastpoka og járn þurfa íbúar að skila sjálfir inn á endurvinnslustöðina á Blönduósi.

Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Blönduósi, ræddi um umferðarhraða á Blönduósi. Hann taldi þau mál vera í góðu lagi en hann ræddi einnig um ýmislegt varðandi umferðaröryggi. Upp úr því spunnust upp miklar umræður um þjóðveginn og Blöndubrú sem margir fundarmenn telja að sé fyrir löngu komin á tíma, nauðsynlega þurfi að laga hana og aðkeyrsluna að henni svo og hringtorgið fyrir innan á.

Fram kemur á vefnum að margir fundarmenn hafi þakkað fyrir fundinn og sagt að augljóslega væri þörf á því að halda fleiri svona fundi, enda góður vettvangur fyrir íbúa að koma skoðunum sínum á framfæri. 

Fleiri fréttir