Engar tilkynningar um tjón borist vegna skjálftanna úti fyrir Norðurlandi

Engar tilkynningar um tjón á eignum hafa enn borist Viðlagatryggingu Íslands í kjölfar jarðskjálftanna sem urðu úti fyrir Norðurlandi um miðnætti í gær. Eigendur vátryggðra verðmæta sem kunna að hafa orðið fyrir tjóni vegna jarðskjálftanna í nótt eru hvattir til að tilkynna um tjón sitt sem allra fyrst.

Tilkynningar skulu berast skriflega í gegnum heimasíðu Viðlagatryggingar Íslands. Þar er hnappur sem heitir „Tilkynna tjón“. Einnig er hægt að senda tölvupóst á vidlagatrygging@vidlagatrygging.is með tilkynningu um tjón, tjónslýsingu, tjónsstað,  tryggingafélag, nafn og símanúmer eiganda/tengiliðs og nafn tryggingataka.

Eftir að tilkynning hefur borist má reikna með matsmenn hafi samband innan 7-14 daga til að bóka skoðun og mat á eigninni. Mikilvægt er að halda til haga öllu lausafé sem kann að falla undir vátryggingavernd þar til skoðun er lokið.

Hlutverk Viðlagatryggingar Íslands er að vátryggja gegn tjóni af völdum náttúruhamfara af völdum eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða. Allar brunatryggðar fasteignir og lausafé sem tryggt er brunatryggingu njóta vátryggingaverndar Viðlagatryggingar Íslands. Auk þess njóta mannvirki sem tilgreind eru í 2. mgr. 5. gr. laga nr. 55/1992 um Viðlagatryggingu Íslands vátryggingaverndar í náttúruhamförum.

Fleiri fréttir