Enginn grunnskólakennari sagt upp vegna kjaradeilu á Norðurlandi vestra

Í gær undirrituðu samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara nýjan kjarasamning. Samningurinn tekur gildir frá 1. desember 2016 til 30. nóvember 2017 og fer nú í kynningu meðal grunnskólakennara og sveitarstjórnarmanna. Samkvæmt heimasíðu KÍ mun niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn liggja fyrir mánudaginn 12. desember.
Fréttir hafa verið fluttar af fjölmörgum uppsögnum grunnskólakennara og er það von samningsaðila að þeir sem þegar hafa sagt starfi sínu lausu, endurskoði þá ákvörðun.
Feykir sendi fyrirspurn á grunnskóla á Norðurlandi vestra um hvort einhverjar uppsagnir hefðu komið til vegna þessarar kjaradeilu og mun enginn það hafa gert.