Enn á gjörgæslu eftir vélsleðaslys

Stúlkurnar voru fluttar með sjúkraflugi frá Sauðárkróki til Reykjavíkur.
Stúlkurnar voru fluttar með sjúkraflugi frá Sauðárkróki til Reykjavíkur.

Líðan stúlku, sem slasaðist alvarlega í vélsleðaslysi á sveitabæ í Austur-Húnavatnssýslu í gær, er stöðug samkvæmt heimildum Rúv. Hún er á gjörgæsludeild Landspítalans. Stúlka sem var með henni á sleðanum var útskrifuð af spítalanum í gærkvöldi.

Stúlkurnar eru taldar hafa misst stjórn á vélsleðanum með þeim afleiðingum að hann hafnaði undir heyrúlluvagni við bæinn. 

Samkvæmt frétt rúv.is skoðaði læknir stúlkurnar á vettvangi og voru þær síðan fluttar með sjúkrabílum á Sauðárkrók og þaðan var flogið með þær í sjúkraflugi suður til Reykjavíkur. Fyrst þurfti að ryðja Alexandersflugvöllur og sandbera áður en flugvélin fór í loftið rétt fyrir kl. 20 í gærkvöldi. 

Fleiri fréttir