Enn ein gæðavaran frá Vilko

Ný vara kom á markað frá Vilko í gær en um var að ræða brauðrasp sem framleiddur er úr nýbökuðu brauði sem á staðnum er þurrkað og malað í gullna raspblöndu.

Í fréttatilkynningu frá Vilko segir; „Vilko Raspur er því hágæða brauðrasp sem myndar fullkominn stökkan hjúp sem hentar vel á allan fisk, kjöt og eða grænmeti. Raspur á sér langa sögu og var fyrst skráð í matreiðslubók árið 1716 og var áður fyrr framleitt úr þurrkuðum afgangsbrauði.“

Mikil vöruþróun hefur verið hjá Vilko og Primakryddi síðasta árið en lítill fugl hvíslaði að Feyki að von væri á fleiri spennandi nýjungum úr herbúðum Vilko sem er með höfuðstöðvar sínar á Blönduósi.

Fleiri fréttir