Kosning á Manni ársins 2015 lýkur á hádegi í dag

Kjöri á Manni ársins á Norðurlandi vestra lýkur kl. 12 á hádegi í dag, 4. janúar. Kosningin fer fram á forsíðu feyki.is. Í þetta skiptið bárust sjö tilnefningar til titilsins og er kosið á milli þeirra sem hér eru nefndir í kosningunni Maður ársins á Norðurlandi vestra 2015.

Hægt er að greiða atkvæði á Feyki.is, kosninguna er að finna á forsíðu Feykis (undir „Mest skoðað“). Einnig er hægt að senda atkvæði bréfleiðis á Feykir, Borgarflöt 1, 550 Sauðárkróki. Tilkynnt verður um útlitin í fyrsta blaði ársins, sem kemur úr næstkomandi fimmtudag. 

Tilnefndir eru: 

Anna Margret og KristinAnna Margrét Arnardóttir og Kristín Ósk Bjarnadóttir, Blönduósi

Athafnakonurnar Kristín Ósk og Anna Margrét á Blönduósi. „Þessar duglegu konur eru teknar við rekstri Félagsheimilisins á Blönduósi. Með jákvæðni og bjartsýni að vopni ætla þær að koma í það nýju lífi og fjölbreyttri starfsemi. Þetta er verkefni sem verðugt er að dást að og eiga þær fyllilega skilið nafnbótina, Maður ársins,“ segir í tilnefningunni um þær stöllur.  

 

 
Anna P. ÞórðardóttirAnna P. Þórðardóttir, Sauðárkróki

Anna Pálína varð áttræð 8. apríl sl. Hún gaf á árinu út bókina Lífsins skák sem inniheldur endurminningar hennar sjálfrar. Anna fékk lömunarveiki níu mánaða og hefur notast við í hjólastól síðan. „Saga hennar hefur vakið mikla athygli en hún lýsir ekki síst mun á kjörum fatlaðra fyrr á árum og í dag. Anna er hvunndagshetja sem hefur tekist á við örlög sín með einstakri þolgæði og bjartsýnina að vopni,“ segir m.a. í tilnefningu. 

 

Fannar OrnFannar Örn Kolbeinsson, Varmahlíð 

Fannar Örn er 23 ára og hefur starfað í Dagvist aldraðra á Sauðárkróki undanfarin sumur. Hann hlýtur tilnefningu fyrir að bjarga mannslífi. Í lýsingu á atburðinum segir að biti hafi hrokkið ofan í háls aldraðrar konu, er allir sátu að snæðingi í dagvistinni. Fannar Örn brást skyndilega við og framkvæmdi Heimlich-takið, þrýsti alls fimm sinnum áður en bitinn hrökk upp úr henni. „Konan var þá orðin blá og við það að missa máttinn í fanginu á honum, en hún jafnaði sig fljótlega eftir að bitinn hrökk upp úr henni.“

 

Johannes og HjordisJóhannes Ríkharðsson og Stefanía Hjördís Leifsdóttir, Brúnastöðum í Fljótum

Hjónin Stefanía Hjördís og Jóhannes, bændur á Brúnastöðum í Fljótum hafa um árabil tekið að sér fósturbörn sem eiga við erfiðleika að etja til lengri dvalar, og hljóta tilnefningu fyrir það. „Þau hafa skilað miklu og góðu starfi í þessum málum, sem er algjörlega aðdáunarvert,“ segir í tilnefningunni. 

 

 

Páll ÞórðarsonPáll Þórðarson (Palli nagli), Blönduósi

Hinn 16 ára gamli Páll, eða Palli nagli eins og hann er oft kallaður, greindist með krabbamein í upphafi síðasta árs. Hann dvaldi langdvölum á Barnaspítala Hringsins á meðan hann gekkst undir erfiðar læknismeðferðir í Reykjavík. Palli er sagður hafa sýnt ótrúlegan karakter allan tímann og einsetti sér m.a. að klára 10. bekkinn á meðan dvöl hans á barnaspítalanum stóð. Palli er á góðum batavegi í dag. 

 

Skúli EinarssonSkúli Einarsson, Tannstaðabakka í Húnaþingi vestra

Skúli bóndi á Tannstaðabakka hefur í gegnum tíðina verið mjög virkur í félagsmálum og alltaf boðinn og búinn að leggja samfélaginu lið. Þess má geta að þau hjónin, Skúli og Ólöf Ólafsdóttir, gáfu í haust veglega peningagjöf sem safnaðist í sextugs afmæli þeirra til Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Að sögn kunnugra er Skúli driffjöður í tónlistarlífinu á svæðinu og ómissandi í menningarlífinu. Nú síðast stóð hann, ásamt fleirum, fyrir eftirminnilegum Jólatónleikum í Ásbyrgi.

 

Viggó JónssonViggó Jónsson, Sauðárkróki

Viggó er staðarhaldari á Skíðasvæði Tindastóls og situr í sveitarstjórn Svf. Skagafjarðar. „Það má segja að Viggó standi á bakvið allt í Skagafirði, hann sér um skíðasvæðið, rekur fyrirtækið Drangeyjarferðir á sumrin, setti Siglingaklúbbinn á laggirnar, styður þétt við bak körfuboltastrákanna og það mætti lengi telja. Metnaðurinn sem er búið að setja í Tindastól TV er alveg stórkostlegur,“ segir m.a. í tilnefningu sem Viggó fékk.

   

Tökum þátt í skemmtilegri kosningu og kjósum mann ársins á Norðurlandi vestra!

Fleiri fréttir