Enn metafli á land á Skagaströnd, 34% aukning frá fyrra ári

Landaður afli á Skagaströnd fyrstu fimm mánuði kvótaársins 2010-11 er tæplega 34% meiri en á sama tímabili síðasta kvótaárs. Þetta eru 6.510 tonn og hefur líklega aldrei áður borist jafn mikill afli á land á Skagaströnd.

Stór hluti aflans fer á fiskmarkað auk þess sem mikið er um að útgerðaaðilar komi og sæki aflann og fari með í sínar vinnslur. Erfitt er því að mæla þessa aukningu í fjölda starfa eða tekjuaukningu fyrir sveitarfélagið nema hvað að starfsemi Fiskmarkaðarins og hafnarinnar styrkist klárlega.

Aflinn það sem af er kvótaárinu er meiri en barst allt kvótaárið 2007-8 og aðeins um 21% minna en næsta kvótaár á eftir, 2008-9.

Landaður afli í janúar á Skagaströnd var 336 tonn sem aðeins minna en í janúar á síðasta ári, en þá barst 353 tonn á land.

Aflahæstu bátar í janúar voru þessir:

• Sighvatur GK-57, 2 landanir, samtals 116 tonn.

• Fjölnir Su-57, 1 löndun, samtals 60,5 tonn

• Sóley Sigurjóns GK-200, 1 löndun, samtals 55,8 tonn

• Berglín GK-300, 1 löndun, samtals 51 tonn

• Alda HU-112, 7 landanir, samtals 28 tonn

• Sæfari SK-112, 7 landanir, 12 tonn

• Flugalda ST-54, 2 landanir, 11 tonn

Kvótaárið miðast við upphaf september og lýkur í lok ágúst árið eftir.

Fleiri fréttir