Enn varað við skemmdum á Þverárfjallsvegi
Mikið er autt á Norðurlandi vestra en þó eru hálkublettir á köflum. Þá er snjóþekja á Þverárfjalli og þæfingsfærð á Siglufjarðarvegi ásamt snjókomu. Vegagerðin varar enn við vegaskemmdum á Þverárfjallsvegi og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát. Þar er vegur mjög ósléttur og er hraði því tekinn niður í 70 km/klst.
Veðrið í dag 12. apríl kl. 15, samkvæmt spá Veðurstofunnar. Mynd: Skjáskot af vef Veðurstofu Íslands.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðaustan 8-13 m/s og él í dag en 5-10 m/s og dregur úr éljagangi á morgun. Frost 3 til 9 stig en 0 til 5 stig á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Austan og norðaustan 8-15 m/s en hægari NA-lands. Snjókoma eða slydda S-til á landinu og síðar rigning með SA-ströndinni. Dálítil él um landið N-vert. Frost víða 0 til 5 stig, en hlánar syðst.
Á sunnudag:
Austan- og norðaustan 13-20 m/s. Talsverð snjókoma eða slydda og síðar rigning A-til á landinu. Snjókoma með köflum NV-lands, en úrkomulítið um landið SV-vert. Hlýnandi veður.
Á mánudag:
Norðaustanátt 8-18 m/s, hvassast NV-til. Skúrir S-lands, en samfelldari slydda eða snjókoma norðan og austanlands, en úrkomulítið SV-til. Hiti 0 til 6 stig, hlýjast syðst.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir norðanátt með éljum um landið norðanvert en hvassa austanátt með slyddu eða rigningu syðra. Kólnar heldur í veðri.
Á miðvikudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt og él fyrir norðan en rigning eða slydda með suðurströndinni. Frost um allt land.
Á fimmtudag:
Lítur út fyrir breytileg átt og bjartviðri en úrkomu SA-lands. Fremur kalt í veðri.