Er hvutti eða kisa á listanum?

Svona er spurt á heimasíðu Blönduósbæjar en bærinn hefur birt lista yfir alla skráða hunda og ketti á Blönduósi undir „samþykktir „ á heimasíðu Blönduósbæjar, www.blonduos.is . Í dag eru skráðir hundar 20 og kettir eru 6.Þá eru eigendur hunda og katta sem enn eru óskráðir hvattir til þess að bæta þar úr. Allar ábendingar um óskráða hunda og ketti eru vel þegnar á netfangið: margret@blonduos.is .

Þá er birt ábending til hundaeiganda en talsvert ber á kvörtunum um að fólk láti hunda sína ganga lausa þvert á mjög skýra reglu í samþykkt um hundahald þar sem segir:

„Leyfishafi skal gæta þess vel að hundur hans valdi ekki hættu, óþægindum eða óþrifnaði,

né raski

ró manna. Hundar skulu ávallt vera í taumi utanhúss, sbr. þó i-lið 2. gr. Leyfishafa er skylt að

fjarlægja saur eftir hundinn.“

„Hundurinn skal aldrei ganga laus á almannafæri, heldur vera í taumi í fylgd með aðila sem

hefur

fullt vald yfir honum. Eigi er leyfilegt að fara með hunda inn í sjúkra- og skólahús,

matvöruverslanir eða nokkurn þann stað þar sem matvæli eru höfð um hönd eða aðra þá

staði

sem tilgreindir eru í reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti sem staðir sem ekki má hleypa

hundum inn á. Óheimilt er að vera með hunda í almenningsgörðum bæjarins, svo sem í

Hrútey,

Fagrahvammi, íþróttasvæðum, kirkjugarðinum og á tjaldstæðum.“

Er hér með skorað á hundaeigendur að huga sérstaklega að þessu og gæta þess að vera

ekki með hunda lausa nema á þeim svæðum sem það er heimilt. Þau svæði eru samkvæmt

samþykkt um hundahald á Blönduósi:

„Heimilt er að sleppa hundum lausum um eftirtalin svæði:

Skúlahorn

Svæði milli Draugagils og þjóðvegar.

Auð og ónýtt svæði fjarri íbúðabyggð.“

Nokkur brögð eru einnig að því að hundar séu óskráðir og er hér með skorað á þá sem það

á við að bæta úr og ganga frá skráningu hunda sinna á skrifstofu Blönduósbæjar.

Ástæða er til að benda á að allir hundar sem eru handsamaðir skulu leystir út með greiðslu

samkvæmt gjaldskrá. Í samþykktum um hundahald segir m.a.:

„Hunda sem ganga lausir utanhúss, skal eftirlitsmaður handsama og færa til geymslu í

þjónustumiðstöð. Sama gildir um hættulega og óleyfilega hunda. Kostnaður við töku,

geymslu og

fóðrun hunda skal að fullu greiddur af eigendum og setur bæjarstjórn gjaldskrá þar um.

Hættulegum

hundum er heimilt að lóga þegar í stað. Aðra hunda er heimilt að afhenda ef leyfi er

framvísað innan

7 daga frá því hundurinn kom í vörslu eftirlitsmanns, enda verði áfallinn kostnaður greiddur.

Sama gildir um hunda sem handsamaðir eru innan bæjarmarkanna og eru frá öðrum

sveitarfélögum, allur kostnaður við töku og vörslu hundsins fellur á eiganda hans. Að öðrum

kosti skal hundinum lógað.“

Fleiri fréttir