Er skuldum Álftaness velt yfir á okkur?
Síðastliðinn þriðjudag var tekin sérstök umræðu á Alþingi um svo kallað aukaframlag Jöfnunarsjóðs. Þetta er framlag upp á 700 milljónir króna, sem í fyrra var sérstaklega ráðstafað til sveitarfélaga í skuldavanda. Nú hefur ríkisstjórnin tekið þá einhliða ákvörðun að ráðstafa rúmlega 40% eða 300 milljónum til eins sveitarfélags, Álftaness, sem þýðir þá samsvarandi lækkun á framlagi til annarra sveitarfélaga.
-Ég óskaði eftir því að þessi ákvörðun yrði endurskoðuð, enda væri hún í hæsta máta óréttlát. Því miður fékk ósk mín engar undirtektir. Mér virðist ríkisstjórnin alveg staðráðin í því að láta málið fara fram svona. Það er mjög alvarlegt, segir Einar K. Guðfinnsson alþingismaður en umræðan var tekin fyrir að hans frumkvæði.
-Þessi ákvörðun ríkisstjórnarinnar hefur í för með sér 40% skerðingu á fjármunum, til annarra sveitarfélaga, einkanlega á landsbyggðinni. Þetta kemur ofan í almenna skerðingu, vegna þess að þessi upphæð sem nú er 700 milljónir, var 1 milljarður í fyrra. Þessi sveitarfélög á landsbyggðinni eru þess vegna að fá á sig 60% skerðingu vegna þessa.
Á fundum með sveitarstjórnarmönnum í kjördæmavikunni var mjög kallað eftir því að þessu yrði breytt. Ég tók þetta mál upp í sérstakri umræðu við innanríkisráðherra sem fer með málefni sveitarfélaga. Ekkert í máli hans gaf mér til kynna að endurskoðunar væri að vænta og aðeins einn þeirra þingmanna úr stjórnarliðinu hvatti ráðherrann til að endurskoða ákvörðunina. Það var Björgvin G. Sigurðsson, aðrir virtust láta sér þetta vel líka. Það eru mikil vonbrigði, í ljósi þessa óréttlætis, segir Einar sem veltir þessum málum upp í aðsendri grein hér á Feyki en hægt er að nálgast hann HÉR.