Er styrkur í þér? Tveir sjóðir í boði
Nú um þessar mundir er að hefjast umsóknar- og úthlutunarferli vegna styrkveitinga Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra fyrir árið 2017. Einnig er að hefjast umsóknar- og úthlutunarferli í nýjan sjóð, Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Norðurlands vestra, fyrir árið 2017.
Umsóknareyðublöð og önnur gögn fyrir báða sjóðina er að finna á heimasíðu SSNV og er umsóknarfrestur til og með 29. nóv. nk.
Sérstök athygli er vakin á auglýsingu um vinnustofur þar sem væntanlegir umsækjendur geta komið, fengið upplýsingar og aðstoð við ritun umsókna, ásamt annarri aðstoð.
Nú er bara að leggja höfuðið í bleyti, bretta upp ermar og hefjast svo handa við skriftirnar.