Erla ráðin til textíllistamiðstöðvar í Kvennaskólanum á Blönduósi

Erla Gunnarsdóttir hefur verið ráðin í hálfa stöðu til að hafa umsjón með textíllistamiðstöð í Kvennaskólanum frá og með 1. janúar 2014. Erla er ferðamálafræðingur að mennt, mikil áhugakona um hönnun og listir og hefur áhuga á atvinnu- og menningaruppbyggingu í héraði.

Textíllistamiðstöð hefur verið rekin af Textílssetri Íslands síðan 2008. Markmið listamiðstöðvarinnar hefur verið frá upphafi að bjóða innlendum og erlendum textíllistamönnum starfsskilyrði og umhverfi sem veitir þeim innblástur í listsköpun sinni sem skilar sér aftur út í samfélagið hér á svæðinu, t.d. í formi sýninga og námskeiða.

Haustið 2012 kom Þekkingarsetrið að uppbyggingunni og er þetta nú orðið samstarfsverkefni beggja stofnanna.

Undanfarið hefur verið mikill áhugi frá, fyrst og fremst, erlendum listamönnum á listamiðstöðinni sem vilja koma til Blönduóss. Sumarið 2013 dvöldu 12 listamenn í Kvennaskólanum í sambandi við sumarverkefni sem unnið var í samstarfi við Nes listamiðstöðina á Skagaströnd. Þar sem að eftirspurn hefur verið mikil fyrir árið 2014 og 2015 var ákveðið að ráða umsjónarmann við verkefnið.

Markmið starfs umsjónarmannsins er m.a. að efla textíllistamiðstöðina og gera hana sýnilegri í samfélaginu, t.d. með að koma á samstarfi við skóla, söfn og setur á svæðinu og aðrar listamiðstöðvar á landinu. Allt útlit er fyrir að þetta verði spennandi og skemmtilegt verkefni, segir í fréttatilkynningu frá Kvennaskólanum.

 

Fleiri fréttir