Ert þú skipulagður og skapandi með stjórnunarhæfileika?

Söfn, setur og félög á Norðurlandi vestra leita að verkefnisstjóra til að sjá um Sögulega safnahelgi sem verður 13. - 14. október nk. á Norðurlandi vestra.

Auglýst er eftir verkefnisstjóra sem getur hafið störf eigi síðar en 17. júlí nk.  Gert er ráð fyrir umfang verkefnisins geti verið 50% starf í tvo mánuði eða 25% starf í fjóra mánuði frá júlí til október.

Starfssvið:

  • Framkvæmdastjóri verkefnisins í samráði við verkefnisstjórn
  • Sér um markaðs- og kynningaráætlun
  • Heldur utan um fjármál verkefnisins
  • Skilar skýrslu um verkefnið í lok október

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband á netfangið sirr@simnet.is fyrir 9. júlí nk.

Fleiri fréttir