„Erum alveg í skýjunum yfir mætingunni“

„Það hefur verið alveg svakaleg flott mæting, við erum alveg í skýjunum yfir því. Blönduóskirkja var full á fyrstu tónleikunum og það komu hátt á annað hundrað manns á Hvammstanga í gærkvöldi, segir Höskuldur B. Erlingsson, formaður Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps.

Kórinn heldur um þessar mundir fjóra tónleika með Söngperlum Ellýjar og Vilhjálms, ásamt hljómsveit Skarphéðins Einarssonar. Næstu tónleikar verðaí Frímúrarasalnum á Sauðárkróki annað kvöld kl. 20 og þeir síðustu í Miðgarði þann 22. mars kl. 15.

Aðspurður um hvort fleiri tónleikum yrði bætt við vegna þessarar góðu aðsóknar sagði Höskuldur að það væru að berast óskir alls staðar frá. „Fólk er að frétta af þessu og hveru gaman þetta er, en við erum bundnir af 90 ára afmæli kórsins sem verður 22. apríl í Húnaveri og verðum að æfa nýja dagskrá með lögum sem kórinn hefur sungið gegnum tíðina. Við munum því skoða það í haust eða næsta vetur hvort við höfum tök á því að halda fleiri tónleika með Söngperlum Ellýjar og Vilhjálms.

Höskuldur segir að veturinn og fram á sumarið verði krefjandi tímabil hjá kórnum en auk Söngperlanna og 90 ára afmælisins, sem verður nánar auglýst síðar, sé framundan Kanadaferð þar sem kórinn tekur þátt í Íslendingahátíð þar ytra í lok júlí.

Fleiri fréttir