ESB fagnar brotthvarfi Jóns Bjarnasonar úr ráðherrastól
Eftir því sem Evrópuvaktin segir á vefsíðu sinni láta ESB-þingmenn í ljós velþóknun á því í ályktun sem samþykkt var á dögunum að Jón Bjarnason, fv. ráðherra og þingmaður norðvestur kjördæmis, hafi verið látinn víkja úr ríkisstjórn Íslands. Samkvæmt því eru vonir bundnar við að brottför hans úr stjórninni verði til þess að Íslendingar leggi sig meira fram um að virða kröfur ESB um aðlögun.
Þá segir að ESB-þingmenn hvetji til þess að látið verði af ágreiningi um ESB-aðild á pólitískum vettvangi og þess í stað verði mótuð heildstæð stefna um aðlögun að ESB. Þingmennirnir binda vonir við störf Evrópustofu og að með starfsemi hennar skapist ný tækifæri í aðildarferlinu. Þá telja þeir að aðild Íslands verði til þess að efla áhrif ESB á norðurslóðum.
Sjá nánar HÉR