ESB nemur úr gildi útflutningsbann á lækningavörum til EFTA-ríkjanna

Evrópusambandið hefur fallist á sjónarmið Íslands og annarra EFTA-ríkja innan EES og fallið frá útflutningsbanni til EFTA-ríkjanna á tilteknum hlífðarbúnaði sem notaður er í störfum heilbrigðisstarfsfólks og er nauðsynlegur í baráttunni við útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Bannið tekur þannig ekki til EFTA-ríkjanna innan EES, útflutningur á framangreindum búnaði verður því áfram heimill og þarfnast ekki sérstakra leyfa.

Á vef utanríkisráðuneytisins kemur fram að þetta hafi verið ákveðið á fundi framkvæmdastjórnar ESB í Brussel í gærkvöldi og mun leiðrétt reglugerð, sem tryggir að útflutningsbannið nái ekki til EFTA-ríkjanna, því taka gildi í stað þeirrar sem fyrir var. Að óbreyttu hefði slíkt bann haft þau áhrif að ekki mætti flytja þennan búnað frá ESB til Íslands án sérstaks útflutningsleyfis.

„Ég fagna því að Evrópusambandið hefur ákveðið að standa við skuldbindingar sínar gagnvart EFTA-ríkjunum og viðurkennt stöðu okkar og réttindi á innri markaðinum. Ég gerði ekki ráð fyrir öðru en sambandið myndi sjá að sér en við áttum náið og gott samstarf við stjórnvöld í Noregi og annarra EFTA-ríkja til að tryggja að svo yrði,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra vegna málsins.

Fyrr um daginn áttu þær Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, símafund þar sem fram kom hjá Ursulu að hún myndi beita sér fyrir lausn málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir