Eyvindarstofa opnaði í gær á Blönduósi
Í gær var formlega opnuð svokölluð Eyvindarstofa á efri hæð veitingastaðarins Pottinum á Blönduósi en þar hefur verið innréttaður salur í anda útilegumanna. Salurinn sem hefur yfirbragð útilegumannahella var hannaður af Gunnari Halldórssyni á Blönduósi en Ingjaldur Kárason leikmyndahönnuður sá um að innrétta og móta steina og hellisveggina sem gerir útlitið afar skemmtilegt og sérstakt.
Að sögn Björns Þórs Kristjánssonar eiganda Pottsins verður salurinn notaður aðallega til að taka á móti hverskonar hópum, sem og fyrir fundi og afþreyingu ýmisskonar. Björn Þór hefur látið hanna fyrir staðinn sérstaka rétti sem boðið verður upp á, í leirtaui sem einnig var hannað sérstaklega fyrir salinn en þar er m.a. fyrirmyndin að súpuskálinni karfa sem Fjalla-Eyvindur, sem skálinn er kenndur við, og Halla kona hans eru talinn hafa notað í útlegð sinni.
Síðar á þessu ári verður sett upp sýning inn af Eyvindarstofu þar sem hægt verður að fræðast um þessa frægustu útilegumenn Íslands og verður það sýningarsvæði einnig í anda útilegumannahella.