Eyvindarstofa opnuð með pomp og prakt
Eyvindarstofa var formlega opnuð með pomp og prakt í gær. Þar mættu fjöldi fólks til að bera augum helli Eyvindar og Höllu í fyrsta sinn, sem er staðsettur ofan við Pottinn Restaurant á Blönduósi.
Að sögn Björns Þórs Kristjánssonar eiganda Pottsins hafa framkvæmdir staðið yfir frá því í nóvember á síðasta ári og hafa að jafnaði starfað um fjórir til sex manns við framkvæmdirnar.
„Hugmyndin var upphaflega að opna Eyvindarstofu á Hveravöllum en það gekk ekki upp og þá datt mér í hug að opna það hér. Ég var með svo mikið ónotað rými fyrir ofan veitingastaðinn, sem hafði bara verið nýtt undir geymslur og því var þetta tilvalið,“ sagði Björn.
Þórhallur Barðason tók lagið fyrir veislugesti og boðið var uppá léttar veitingar og skálað í tilefnið dagsins.