Fá afslátt af fasteignagjöldum á gömlu kirkjunni
Bæjarráð Blönduósbæjar ákvað með tveimur atkvæðum gegn einu atkvæði fulltrúa Samfylkingar að veita Sveini M Sveinssyni og Atla Arasyni eigendum gömlu kirkjunnar á Blönduósi 50 þúsund króna afslátt af fasteignagjöldum ársins 2011.
Höfðu þeir félagar óskað eftir niðurfellingu gjalda á húsnæðið og studdi fulltrúi Samfylkingar þá tillögu. Var erindinu vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar þar sem ekki var gert ráð fyrir styrknum í fjárhagsáætlun Blönduósbæjar fyrir árið 2011