Fá styrk til kaupa á nýjum björgunarbát
Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti að styrkja Björgunarsveitina Strönd til að festa kaup á nýjum björgunarbát.
Kom þetta fram á sveitarstjórnarfundi sl. mánudag og segir í fundargerð að sveitarstjórninni barst bréf þess efnis að Björgunarsveitin óskaði eftir styrk til að fjármagna endurnýjun á Þórdísi björgunarbát sveitarinnar.
Björgunarsveitinni stendur til boða öflugur bátur af gerðinni Atlantic 75 frá RNLI (Royal National Lifeboat Institution) í Bretlandi fyrir 9 milljónir króna og óskaði eftir 3 m.kr styrk til kaupanna. Samþykkt var að gera ráð fyrir 2,5 m.kr. til verkefnisins við gerð fjárhagsáætlunar 2012.