Fækkun sjúkrabíla frestað
Sjúkratryggingar Íslands og Rauði kross Íslands hafa gert með sér samning sem tryggir áframhaldandi rekstur flestra þeirra sjúkrabíla á landsbyggðinni sem taka átti úr rekstri í janúar nk. til loka næsta árs. Frestunin nær m.a. til Skagastrandar og Hvammstanga.
Samkvæmt samningi um sjúkraflutninga sem gerður var árið 2012 til ársloka 2015 átti að fækka bílum á landsbyggðinni úr 77 í 68. Fækkun bíla átti að vera komin til framkvæmda í næsta mánuði.
Áður var búið að fækka bílum um þrjá og stendur sú ákvörðun óbreytt þar sem fyrir liggur að þjónusta raskast ekki vegna þeirra breytinga.
Frestun á fækkun sjúkrabíla tekur til þeirra bíla sem staðsettir eru í Ólafsvík, Búðardal, á Hvammstanga, í Ólafsfirði, á Raufarhöfn og Skagaströnd. Húnahornið greindi frá þessu.