Fagþing hrossaræktarinnar í Hafnarfirði á föstudag

Hestur og knapi. MYND: ÓAB
Hestur og knapi. MYND: ÓAB

Fagþing hrossaræktarinnar fer fram föstudaginn 7. nóvember klukkan 13 í Reiðhöll Sörla í Hafnarfirði. Samkvæmt upplýsingum Feykis er fagþingið fundur deildar hrossabænda innan Bændasamtaka Íslands en allir tengdir hrossarækt eru velkomnir. Á fundinum gefst tækifæri til að hafa áhrif á starfið í deildinni og koma að stefnumótun í málefnum hrossaræktarinnar.

Dagskrá fagþings:
13:00 Félagskerfið okkar - hver er staðan og hvaða sviðsmyndir eru í boði.
Jón Vilmundarson.
Umræður og vinnuborð.
15:00 Kaffihlé.
15:20 Alendis – SmartHorse.
Johannes Amplatz sérfræðingur í vöruþróun.
15:40 Pallborð og umræður, framkvæmd kynbótasýninga og dómar
Árni Björn Pálsson, Olil Amble og Þorvaldur Kristjánsson.
16:30 Sumarexem staða rannsóknar.
Vilhjálmur Svansson DVM, PhD.
Umræður.
17:00 Vinna við mótun reglna í kringum sæðingar.
Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur.
Umræður.

Matur er í boði Félags hrossabænda en bent er á að nauðsynlegt er að skrá sig í matinn. Síðasti skráningardagur er í dag, 6. nóvember.

Fleiri fréttir