Fámennt Landsmót að baki
Þórarinn Eymundsson segir stemninguna á ný yfirstöðnu Landsmóti hestamanna hafa verið fína í viðtali í nýjasta tölublaði Feykis. Þó segir hann vera umhugsunarvert að það hafi verið frekar fámennt og sér í lagi illa sótt af Íslendingum en að líklega hafi aldrei fleiri útlendingar verið á mótinu.
„Það var tiltölulega fámennt og maður fann fyrir því og ég held að í framtíðinni verði menn að hugsa öðruvísi. Það allavega tókst ekki með Landsmót í Reykjavík að fá fleiri inn, eða stækka kökuna, verandi í höfuðborginni,“ segir Þórarinn en orsökina telur hann fyrst og fremst liggja í gríðarlega háu miðaverði.