Farandsýning, fyrirlestur og kjólasund

Kvenréttindafélag Íslands stendur fyrir farandsýningu um kvenréttindabaráttu síðustu 100 ára. Sýningin mun ferðast um landið á þessu ári og stoppa við mánuð í senn í hverju sveitarfélagi. Í apríl er sýningin á Blönduósi.

Í auglýsingu í Glugganum hvetur menninga-, tómstunda- og íþróttanefnd Blönduósbæjar sem flesta til þessa að koma við og kynna sér sögu kvenréttindabaráttunnar á Íslandi en sýningin er staðsett í Íþróttahúsinu á Blönduósi.

Í tengslum við sýninguna mun Héraðsbókasafnið standa fyrir þemadögum allan aprílmánuð þar sem hægt verður að nálgast á aðgengilegan hátt hinar ýmsu bækur sem tengjast efninu. Fimmtudaginn 9. apríl klukkan 19:00 mun sunddeild Hvatar efna til kjólasunds og eru allir, jafnt konur sem karla hvattir til þess að mæta í kjól og taka þátt.

Þriðjudaginn 14. apríl klukkan 16:00 mun Þór Jakobsson halda fyrirlestur um Sigurð Jónasson frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal, en hann þýddi Kúgun kvenna eftir John Stuart Mills sem reyndist verða grundvallarit í sögu kvenréttindabaráttu í heiminum. Þess má geta þess að sama dag klukkan 20:00 mun verða fyrirlestur í Kvennaskólanum um veðurfarsbreytingar en það verður auglýst nánar síðar.

Farandsýningin um kvenréttindabaráttuna síðustu 100 árin samanstendur af átta stórum spjöldum, myndskreyttum, með stuttum texta á ensku og íslensku og eru þau sett upp í tíma og þemaröð. Sýningin fer nú hringferð um landið, mánuð í hverju sveitarfélagi eins og áður sagði. Hún hóf för sína í Borgarnesi í janúar og endar í Reykjavík í desember.

 

Fleiri fréttir