Fatamarkaður RKÍ
Austur-Húnavatnsdeild RKÍ verður með fatamarkað í dag, laugardaginn 23. júní, frá kl. 13 - 15. „Fylltu poka af fötum fyrir 1.500 krónur. Ný sending af fatnaði væntanleg. Mikið úrval af leikföngum, púsluspilum, bókum, vhs- spólum, gardínum og smávöru,“ segir í fréttatilkynningu á Húna.is.
Vakin er athygli á því að ennþá er hægt að gefa í undirfatasöfnunina sem var í tengslum við kvennahlaupið 16. júní sl.
„Allur ágóði rennur óskiptur til deildarinnar,“ segir loks í tilkynningu.