Fékk viðurkenningu fyrir afburðaárangur

Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík hélt sjöttu verðlaunahátíð sína til heiðurs 23 nýsveinum sem luku burtfararprófi í iðngreinum með afburðaárangri 2011. Hátíðin var í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík laugardaginn 4. febrúar. Að þessu sinni fékk einn nemandi frá FNV Smári Hallmar Ragnarsson viðurkenningu fyrir afburðaárangur á sveinsprófi í vélvirkjun, en iðnmeistari hans er Hjörtur Elefsen.

Hann fékk jafnframt viðurkenningu frá Háskólanum í Reykjavík fyrir árangurinn og var þar einn af þremur nýsveinum sem fengu slíka viðurkenningu sem fólst í því að þeim var boðið til náms í skólanum með niðurfellingu skólagjalda á haustönn 2012. Foreldrar Smára eru þau Ingibjörg Sigurðardóttir og Ragnar Árnason búsett á Sauðárkróki.

Þess má  geta að fyrrum nemandi við FNV, Ólína Björk Hjartardóttir, fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í snyrtifræði, en hún stundaði það nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.

Fleiri fréttir