Félagar í Skotfélaginu Markviss gerðu góða ferð í Hafnarfjörðinn
SIH-OPEN, árlegt alþjóðlegt mót sem haldið er af Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar (SIH), fór fram dagana 2.-3. júlí. Keppendur voru 31 að þessu sinni frá 3 löndum en auk Íslendinga voru skotmenn og konur frá Danmörku og Svíþjóð. Skotfélagið Markviss á Blönduósi átti þar 2 keppendur, þá Brynjar Þór Guðmundsson og Guðmann Jónasson.
Fyrirkomulag mótsins er með þeim hætti að eftir fyrri dag er hópnum skipt í miðju, í A og B flokk og eftir seinni dag skjóta 6 efstu í hvorum flokk fyrir sig til úrslita. Eftir fyrri daginn voru báðir Markviss mennirnir fyrir ofan miðjan hóp, Brynjar í 11. sæti og Guðmann ásamt 2 öðrum í 3.- 5. sæti.
Seinni daginn voru veðurfarslegar aðstæður með versta móti og lækkaði meðalskor flestra keppenda nokkuð. Líklega hafa æfingar Markviss manna í norðaustan áttinni í vor skilað sér þar sem báðir náðu að halda nokkuð í horfinu frá því deginum áður. Brynjar komst upp í 9. sætið og Guðmann var í þriðja sæti inn í úrslit og hélt því.
Þess má geta að vindhraði var mældur á vellinum meðan keppni fór fram á sunnudeginum og mældist hann 17 m/sek. Nánari upplýsingar um úrslit má nálgast á heimasíðu SIH. www.sih.is.
/Húni.is