Félagið Húnavaka lagt af á aðalfundi?
Aðalfundur Húnavaka (Landsbyggðin lifi) fyrir síðast liðin 5 ár verður haldinn í Samstöðusalnum Þverbraut 1, nk. sunnudag, 13. janúar kl. 14.00.
Í auglýsingu í Glugganum kemur fram að auk venjulegra aðalfundarstarfa liggur fyrir fundinum tillaga frá stjórn félagsins um að félagið verði lagt formlega niður, nema áhugsamir félagar mæti á fundinn og bjóði fram krafta sína til að starfa í stjórn félagsins.