Féll fimm til sex metra á milli hæða
Húni.is greinir frá því í dag að sjö ára gömul stúlka féll á milli tveggja hæða í heimahúsi á Blönduósi í gær og var hún flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús á Akureyri. Betur fór en á horfðist að sögn lögreglu og virðist sem að stúlkan hafi sloppið með skrekkinn en hún reyndist óbrotin og meiðsl hennar einungis minniháttar.
Stúlkan var að leika sér á annarri hæð heima hjá ömmu sinni og afa þegar hún féll í stiga og á næstu hæð fyrir neðan. Henni skrikaði fótur efst í stiga, féll niður á hlera yfir stigaopi á fyrstu hæðinni en hlerinn gaf eftir svo hún féll alla leið niður í kjallara. Að sögn lögreglu var fallið um fimm til sex metrar.