Ferðahelgi framundan
Búast má við því að margir leggi land undir fót nú um páskana. Fari í sumarbústað, á skíði, upp á hálendið eða til vina og vandamanna. Veðurspá er almennt ágæt á landinu fyrir páskana, þó er mikilvægt að hafa varann á varðandi veðrið og má t.d. vænta hálku á einhverjum svæðum. Því er nauðsynlegt að skoða færð og veður áður en lagt er af stað, líka þó eigi bara að fara stutta ferð.
Gagnlegar upplýsingar um færð er að finna á vef Vegagerðarinnar og í síma þeirra 1777 ásamt upplýsingum um veðurfar á sjálfvirkum veðurstöðvum þeirra. Nánari upplýsingar um veðurspá, staðarspár og veðurfar síðustu daga má m.a finna á vef Veðurstofunnar, vedur.is.
Á heimasíðu VÍS er farið yfir ýmis öryggismál en reynslan sýnir að þegar veður fer batnandi og færðin er góð þá eykst hraðinn í umferðinni. Við þær aðstæður verða slysin gjarnan. Mikilvægt er að allir hafi það í huga og aki á löglegum hraða og miði hraðann jafnframt við aðstæður. Gæti vel að sér í framúrakstri og muni að með því að hækka hraðann um 10 km/klst. þá sparast einungis 5 mínútur fyrir hverja ekna 100 km.
Bílbelti eru mjög mikilvægt öryggistæki og enginn ætti að ferðast í bíl án þeirra. Rannsóknarnefnd umferðarslysa telur að 49 einstaklingar sem létust í umferðarslysum á árunum 2000-2012 hefðu lifað af slysið ef þeir hefðu notað bílbelti. Þrátt fyrir þessa vitneskju eru um 9% ökumanna í Reykjavík án bílbelta samkvæmt könnunum VÍS. Sama á við um farangur, hann getur stórskaðað þá sem í bílnum eru ef hann er ekki festur niður.
Ef fara á um hálendið þarf að undirbúa ferðina vel en slys og óhöpp hafa oft orðið í hálendisferðum um páska. Veðurfar hefur oft á tíðum áhrif á fjölda slysanna en árvekni, góður undirbúningur og skynsemi dregur úr líkum á þeim. Til að auka öryggi okkar og fjölskyldunnar er nauðsynlegt að huga að:
- - Færð og veðri
- - Ferðaáætlun sem aðstandendur vita af
- - Hlýjum og skjólgóðum fatnaði, góðum skóbúnaði og teppum
- - Öryggisbúnaði sem á við mismunandi ferðamáta og frístundaiðkun
- - Fjarskiptum og kunnáttu á þau
- - Nesti og neyðarnesti
- - Almennu ástandi bílsins, dekkja, ljósa og eldsneytis
- - Festa niður farangur
- - Staðháttum og kynna þá fyrir börnunum
- - Afþreyingarefni fyrir börnin
- - Ganga tryggilega frá heimilinu með því að huga að rafmagni, vatni og loka gluggum og útidyrum
Á heimasíðu VÍS http://vis.is/einstaklingar/forvarnir/ er að finna ýtarlegri upplýsingar um öryggi í umferðinni og frítímanum sem gott er að kynna sér með það að markmiði að koma heil heim.
/Vís.is