Ferðalangur í Stafnsrétt
„Það er svolítið skrýtið að fá hingað kind sem aldrei hefur farið úr heimahögum," segir Sigurjón Stefánsson, bóndi á Steiná í Svartárdal í Austur-Húnavatnssýslu á Vísi.is í dag, en hann fann kind úr Rangárvallasýslu í Stafnsrétt þegar réttað var þar í 200. sinn síðastliðinn laugardag.
Sigurjón telur að kindin gæti hafa komið öðru hvoru megin við Hofsjökul norður á Eyvindarstaðaheiði þaðan sem hún smalaðist en þá hefur hún þurft að fara yfir einhverjar jökulár; „...nema hún hafi farið yfir Hofsjökul. Það er ómögulegt að segja hvaða leið hún hefur farið," segir Sigurjón.
Þar sem kindin gerðist línubrjótur þ.e. farið yfir sauðfjárveikivarnarlínur ber að fella hana og var það gert í gær.
Sjá frétt Vísis.is