Ferðamaður frá Tasmaníu lét ekki frostið á sig fá
Bæjarbúar á Blönduósi ráku upp stór augu á dögunum þegar þeir urðu varir við tjald á tjaldstæðinu en þá nótt hafði frostið farið í að minnsta kosti 10 gráður. Þar á ferð var Wayne nokkur frá Tasmaníu en hann hafði næturhvíld á Blönduósi á leið sinni frá Akureyri til Reykjavíkur.
Wayne lét vel af sér og ræddi við Jón Sigurðsson fréttaritara Morgunblaðsins á Blönduósi:
„Wayne lét vel af sér og sagðist hafa sofið samfellt í 7 tíma í nótt og var hinn brattasti. Spurður um ferðir sínar sagði Wayne vera meðlimur í samtökum sem kalla sig Móðir jörð og hann hefði verið í sjálfboðavinnu austur á Héraði og í Eyjafirði. Nú lá leið hans til Reykjavíkur og þaðan ætlaði hann til London og þaðan til Kúbu áður en hann sneri aftur heim til Ástralíu. Wayne hafði með sér fartölvu sem hann fékk gistingu fyrir í N1 skálanum fyrir ofan tjaldsvæðið. Lárus Björgvin Jónsson umsjónarmaður tjaldsvæðisins taldi þetta einstakan atburð því hann sagðist aldrei hafa vitað til þess að nokkur maður hefði gist á tjaldsvæðinu á þessum árstíma fyrr.“
Í bloggfærslu sinni lætur Jón fylgja með vísu vikunnar sem Anna Árnadóttir orti að tilefni óvænta næturgests tjaldstæðisins.
- Menn vol' yfir kuli og kalda,
- kappklæddir móinn í malda.
- En mönnum bregður í brún,
- Bara að horf' út á tún
- því þar er víst Ástrali að tjalda.