Ferðamálasamtökin með aðalfund

Aðalfundur Ferðamálasamtaka Norðurlands vestra verður haldinn á Eyvindarstofu á Blönduósi þriðjudaginn 16. apríl nk. kl. 17.00. Ingibjörg Sigurðardóttir lektor við háskólann á Hólum verður með kynningu á doktorsverkefni sínu sem fjallar um tengsl ferðaþjónustu við hestamennsku. Einnig mun hún fjalla um ferðaþjónustu og fjármál.

Dagskrá:

  • 1. Kosning starfsmanna fundarins
  • 2. Skýrsla stjórnar
  • 3. Reikningar
  • 4. Kosning formanns og stjórnar
  • 5. Kosning skoðunarmanna
  • 6. Ákvörðun um upphæð árgjalds
  • 7. Lagabreytingar
  • 8. Önnur mál

Allir velkomnir

Fleiri fréttir