Ferðastiklur í Húnavatnssýslum
Eins og sjónvarpsáhorfendur hafa líklega tekið eftir hefur RÚV undanfarið sýnt þættina Ferðastiklur þar sem feðginin Lára Ómarsdóttir og Ómar Ragnarsson ferðast um landið. Síðast liðinn sunnudag voru þau í Húnaþingi.
Viðkomustaðir í þættinum voru m.a. á Bjargi í Miðfirði, Illugastöðum og Hindisvík, við Kattarauga í Vatnsdal, á Þingeyrum, Hvammstanga, Borgarvirki og Kolugljúfri í Víðidal.
Í Ferðastiklum er jafnan fjallað um áhugaverða staði þar sem áhugaverðir atburðir gerðust eða eru sagðir hafa gerst. Feðginin hitta fólk, heyra sögur, skoða náttúruperlur, kynnast menningu og skemmta sér saman á ferð sinni um landið og stundum koma óvænt atvik upp.
Allir staðirnir sem farið er á eiga það sameiginlegt að vera nokkuð aðgengilegir og því ætti fólk að finna eitthvað við sitt hæfi og jafnvel fá hugmyndir að eigin ferðalögum um landið.
Þáttinn úr Húnavatnssýslum er hægt að nálgast HÉR.