Fergusonfélagið með fund í Dalsmynni

Fergusonfélagið og Landbúnaðarsafn Íslands boða til fundar í Dalsmynni í Svínadal þann 1. apríl næstkomandi klukkan 20:30. Þór Marteinsson, formaður Fergusonfélagsins, kynnir félagið og Bjarni Guðmundsson verkefnisstjóri hjá Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri fjallar í máli og myndum um efnið „Frá Torfa í Ólafsdal til traktora nútímans...!“

Ræktunarframfarir og nýja verkmenningu í byrjun 20. aldar má í mörgu rekja til Torfa Bjarnasonar og skóla hans í Ólafsdal. Svo komu dráttarvélarnar af ýmsum gerðum, sem ásamt landbúnaðarjeppanum breyttu störfum og mannlífi til sveita enn frekar og urðu eftirsóttar menningarminjar og hluti þjóðarsögunnar.

Í fundarlok áritar Bjarni bækur sínar „... og svo kom Ferguson“, „Alltaf er Farmall fremstur“ og „Frá hestum til hestafla“.. fyrir þá sem þess óska, hvort heldur sem þeir koma með þær eða kaupa á fundinum. Boðið verður upp á kaffi, kleinur og spjall í hléi. Allir áhugamenn um gamlar dráttarvélar og þátt þeirra í sögu sveitanna eru velkomnir, eins og segir í tilkynningu á vefnum Húnahornið.

Vel mætt á fund í Vestur-Húnavatnssýslu

Hátt í þrjátíu manns mættu á fund Fergusonfélagsins í Ásbyrgi Laugabakka þann 18. mars síðastliðinn auk fyrirlesara og stjórnarmanna félagsins. Þór Marteinsson formaður var næstum á heimavelli en hann er úr Austur-Húnavatnssýslu og margir könnuðust við vélasöfnun hans og Einars bróður hans að Gilá í Vatnsdal.

Þór kynnti félagið og svo stiklaði Bjarni á Hvanneyri á ýmsum steinum í Íslandssögunni, heimssögunni, landbúnaðar- og vélasögunni. Þannig tvinnaðist sjálfstæðisbarátta Íslendinga á nítjándu öld og barátta bænda við þúfurnar. Svo kom vélaaflið með  traktorana og tilheyrandi tæki og saga jeppanna í landbúnaði er sérstök á Íslandi.

Margir komu með bækurnar hans Bjarna og fengu áritun hans á þær. Í lokin spurðu fundarmenn um ýmislegt s.s. "rétta liti" á dráttarvélum, mynstur í dráttarvéladekkjum, varahlutakaup og fleira og eins og á öllum fundum með Bjarna var að sjálfsögðu spurt: „Verður þúfnabaninn gerður upp?“ Bjarni benti á kostnaðarhliðina og það fé sem til þyrfti væri ekki í augsýn. Sagt er frá þessu á vef Fergussonfélagsins.

Fleiri fréttir