Fermingarblað Feykis aðgengilegt á netinu

Feykir vikunnar er tileinkaður fermingum. Að venju er blaðið stærra í sniðum, fjölbreytt og vandað til útlits þess. Meðal efnis er viðtal við Nönnu Rögnvaldar matreiðslufrömuð og metsöluhöfund þar sem segir frá æskuárum sínum í Skagafirði og talar um matarástina. Fjallað er um söngleikinn Súperstar sem verið er að setja á svið á Hvammstanga og viðtal við Jóhönnu Ey sem hannar og saumar undir merkjum J.EY Design. 

Kíkt er á fermingartískuna, rætt við Karsten Rummelhoff konditor hjá Sauðárkróksbakaríi um vinsælustu í fermingarkökurnar, spjallað er við fermingarbörn, unga sem aldna, svo dæmi sé tekið. 

Blaðið hefur verið dreift frítt um allt Norðurland vestra en einnig má lesa blaðið hér á Feykir.is. 

Fleiri fréttir